Mikilvægar upplýsingar um happdrættisleyfi og reglugerðir
er eingöngu vettvangur fyrir sölu á miðum og yfirlit yfir happdrætti. Útráttur þarf að fara fram að viðstöddum fulltrúa sýslumanns.
stofnar ekki happdrætti nema leyfi fyrir happdrætti liggi fyrir hjá sýslumanni.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi veitir leyfi fyrir happdrættum á landsvísu ef söluverðmæti útgefinna miða er yfir 2.000.000 kr.
Sýslumenn hver á sínu svæði veita leyfi fyrir staðbundnum happdrættum þar sem söluverðmæti útgefinna miða fer ekki yfir 2.000.000 kr.
Leyfi til að reka happdrætti má einungis veita félagi, samtökum eða stofnun sem er skráð á Evrópska efnahagssvæðinu. Tilgangurinn verður að vera að afla fjár til almannaheilla svo sem til þjóðfélags-, líknar-, menningar-, íþrótta- eða góðgerðarmála, svo og til alþjóðlegs mannúðarstarfs.
Sami aðili getur einungis fengið þrisvar sinnum leyfi til að reka happdrætti á 12 mánaða tímabili.
Sölutímabil happdrættis má að hámarki vera þrír mánuðir. Útdráttur vinninga skal fara fram á fyrirfram ákveðnum tíma, að fulltrúa sýslumanns viðstöddum, ef við á.
Heimilt er að fresta útdrætti um allt að tvo mánuði frá áður ákveðnum útdráttardegi með sérstöku leyfi sýslumanns.
Þegar um miðahappdrætti er að ræða, þar sem á að draga út vinningshafa, þarf að panta tíma hjá sýslumanni fyrir útdráttinn sem fer þá fram að viðstöddum fulltrúa sýslumanns.
Fylla þarf út umsókn um leyfi til að reka happdrætti og senda á viðkomandi sýslumannsembætti sem fer yfir umsóknina og gefur út leyfisbréf ef öll skilyrði eru uppfyllt. Í umsókninni þarf meðal annars að koma fram:
Með umsókninni þarf að fylgja listi yfir vinninga og verðmæti hvers þeirra.
Hlutfall verðmætis vinninga af heildsöluverði útgefinna miða skal að lágmarki vera 16,67%.
Leyfishafi happdrættis þarf að senda sýslumanni uppgjör eða reikningsyfirlit í síðasta lagi 6 mánuðum eftir að happdrættinu lauk. Í uppgjörinu þarf að koma fram:
Undanþegin leyfisskyldu eru happdrætti sem félag eða hópur efnir til á árshátíðum og öðrum slíkum samkomum í skemmtana- eða fjáröflunarskyni, sem ekki eru opnar almenningi, enda séu vinningar lágir að verðgildi. Tilgangurinn með samkomunni má ekki vera sá einn að afla fjár til tiltekins málefnis:
Það þarf ekki leyfi fyrir eftirfarandi happdrættum ef kostnaður vegna þátttöku nemur ekki hærri fjárhæð en þreföldum raunverulegum kostnaði: